AIC – ÍSLAND / ICELAND
|
Isavia ANS ehf., Reykjavíkurflugvelli, 102 Reykjavík / Isavia ANS, Reykjavik Airport, IS-102 Reykjavik, Iceland Sími / Telephone: + 354 424 4000 ais@isavia.is http://www.isavia.is/
|
| |
|
Effective from 13 OCT 2017
Published on 13 OCT 2017
|
|
| |
Skoðanir mæli-, fjarskipta og flugleiðsögutækja loftfara / Inspections of aircraft measurement, communications and navigational instruments
|
|
Efnisleg ábyrgð: Samgöngustofa
|
|
1 Loftför, önnur en þau sem notuð eru í flugrekstri |
- Loftför sem notuð eru til nætur og/eða blindflugs skulu hafa fjarskipta- og leiðsögubúnað prófaðan ásamt hraða- og hæðarmælum á a.m.k. 24 mánaða fresti.
- Mælt er með að hraða- og hæðarmælar loftfara sem eingöngu eru notuð til sjónflugs og takmarkaðs næturflugs, séu prófaðir á a.m.k. 24 mánaða fresti.
- Ratsjárvara (ATC Transponder) skal prófa á a.m.k. 24 mánaða fresti.
- Seguláttavita svo og fjarstýrða áttavita skal stilla (compass swing) ef grunur leikur á að þeir sýni ekki rétt, svo og eftir viðhaldsvinnu eða breytingar, sem gætu leitt af sér skekkjur í áttavita. Önnur mælitæki skal prófa ef grunur leikur á að þau vinni ekki rétt.
- Hvort sem mælitækin eru prófuð í loftfarinu eða á verkstæði, skal nota til þess viðurkenndan prófunarbúnað sem reglulega er borinn saman við viðurkenndan grunnstaðal. Flugvélatæknir sem framkvæmir prófun á hraða- og hæðarmælum skal hafa hlotið til þess, sérstaka þjálfun. Ef mælitæki stenst ekki prófun, telst það ólofthæft og skal það þá fært á viðurkennt mælitækjaverkstæði, til viðgerðar. Stilling á hraða- og hæðarmælum skal fara fram á viðurkenndu mælitækjaverkstæði.
- „Pilot/static“ kerfið skal lekaprófa ef leiðslum hefur verið raskað.
|
2 Loftför sem notuð eru í flugrekstri |
Mæli-, fjarskipta og flugleiðsögutæki loftfara í atvinnuflugi skulu prófuð samkvæmt viðurkenndri viðhaldsáætlun. |
Reglur þessar öðlast gildi nú þegar. |
Upplýsingabréf fellt út gildi: / AIC hereby cancelled:
B 006 / 2004
|
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi: / NOTAM incorporated in this AIC:
Ekkert / NIL
|
|